Nóvemberfćrslaatli geir júlíusson
Já komiði sæl og blessuð... langt síðan síðast.Mikið hefur gerst í samfélaginu síðan ég var hér síðast, já það kreppir heldur betur að. Maður sjálfur, vinir manns, kunningjar, vinnufélagar og aðrir eiga í erfiðleikum. Lán hækka, námslán verða að engu hjá fjölmörgum námsmönnum erlendis (ekki það að þau hafi verið há fyrir það fyrsta), afborganir komnar í ruglið, vöruverð hækkar, gengið lækkar, atvinnuleysi hækkar og svo gæti maður haldið áfram að telja. Það er manns helsta ósk þessa dagana að þeir sem eru manni næst sem og aðrir komist í gegnum þetta á sem bezta mögulega hátt.
Auðvitað trúir maður því og treystir að þetta muni reddast og maður verður að vera bjartsýnn og halda í vonina. Spurningin er hins vegar sú hvernig getur maður verið bjartsýnn þegar við íslendingar eru að reyna að taka 2000 milljóna króna DOLLARA lán já dollara. Hvernig eigum við að getað borgað þetta til baka segir maður bara. Svo segja menn að það vanti 4000 milljónir DOLLARA upp á til að getað bjargað landinu. Þetta eru tölur sem maður er löngu hættur að skilja. Og áfram heldur maður í vonina, vonina um að stjórnmálamennirnir og þeirra sérfræðingar séu að gera sitt bezta fyrir þjóðina og þá sérstaklega með komandi kynslóðir í huga. En hvað veit ég, Dabbi og Geiri þykjast vera með þetta allt á hreinu.
Litla fjölsyldan á Vallarheiði dafnar vel og Patrekur fer á kostum, ótrúlegt hvað þessi kríli eru fljótt að þroskast og stækka. Drengurinn stækkar og stækkar og finnur upp á einhverju nýju á hverjum degi. Ekki leiðinlegt að hafa svona mikinn gleðigjafa inn á heimilinu, maður gleymir sko öllu þessu krepputali þegar hann lætur í sér heyra. Fyrir þá sem ekki vita höfum við sett upp myndasíðu: www.barnanet.is/patrekuratlason þar getið þið séð hvað drengurinn hefur dafnað vel. Sendið mér bara póst á atlig@vso.is ef þið viljið lykilorðið.
En ekki meira í bili, kveðja frá Vallarheiðinni AGJ
Patrekur heitir hannatli geir júlíusson
Já komiði sæl og blessuð
Ég er búinn að laga myndirnar þannig að núna getiði séð hvernig drengurinn lítur út og hverjum hann er líkur. Hann var skirður á mánudaginn og heitir hann Patrekur.
Kveðja Atli
Litli kúturinn sem kom í heiminn á laugardaginnatli geir júlíusson
Heil og sæl
Mikið hefur drifið á daga okkar Gígju sl tvær vikur. Við erum orðinir foreldrar. Já litli drengurinn okkar fæddist þann 12 júli og þvílík gleði á okkar heimili. Að vísu gekk fæðingin ekki eins og við höfðum óskað okkur en maður er snöggur að gleyma því þegar maður fær svona fallegan dreng í fangið. Við settum nokkrar myndir hér inn sem þið getið skoðað. Þær eru að vísu eitthvað brenglaðar en vona að það lagast.
Þar til næst, veriði hress.
kv. Atli og Gígja
Sumariđ er komiđatli geir júlíusson
Já komiði sæl og blessuð, summarið er komið. Kallinn er búinn að taka fram hjólið og farinn að hjóla um bæinn þveran og endilangan. Ekki kominn með 100 km á mælinn eins og sumir sem maður þekkir, hehehe. Ekki nóg með að hjólið er komið úr hjólageymslunni þá er kallinn að byrja í BOOT-CAMP í næstu viku, sex vikur af harðsperrum, SPENNANDI.Óléttan gengur vel hjá okkur Gígju og Gígja blómstara sem aldrei fyrr. Við bíðum og bíðum og tíminn reynir að líða smá fyrir okkur, okkur finnst þessi tími nú samt liðið ótrúega hratt. Sett nokkrara myndir inn fyrir ykkur sem vilja sjá hvað hún Gígja er orðin myndarleg.
kveðja Atli
Ný BS-fćrsla.atli geir júlíusson
Jæja nú er best að blogga... en þið sem lesið verðið að kommenta svo maður viti nú að fólk er að fylgjast með.
Það er búið að vera í nógu að snúast hjá kallinum síðustu daga og vikur. Fyrir ykkur sem ekki vita þá er Gígja ÓLÉTT og erum við skötuhjúin orðinn gríðarlega spennt. Litla krílið á að koma í heiminn þann 9 júlí sem þýðir að það eru minna en tveir mánuðir í þetta. Allt að gerast. Við höfum verið að koma okkur upp nauðsynlegustu hlutunum og kannski meira en það, heheheh. Annars eru mamma, tengdó og amma verið annsi iðnar við kolann að koma okkur upp góðum og flottum hlutum.
Ég var að klára prófin fyrir nokkrum klukkustundum sem er frábært. BS-inn innan seilingar, já kallinn að útskrifast, snilld. Þessi próftörn hefur veri nokkuð góð, próftaflann alger snilld sem varð kannski til þess að maður var frekar kærlaus en þetta reddaðist allt saman.
Evrovisjon fór ekki eins og margir hefðu kosið en þetta var samt fínt. Flott stemming í partíum stundum höfum við varla fengið stig og hvað þá komist upp úr undankeppninni.
Bless í bili
Próf, próf próf og jú ólétta.atli geir júlíusson
Allt of langur tími liðinn frá síðustu færslu, kannski kominn timi til að viðurkenna að maður er slappur bloggar. En það þýðir ekki að væla yfir því heheh.
Nóg að gera þessa daganna, prófin eru hafinn og allt vitlaust að gera á meðan að þau ganga yfir. Sem betur fer er ég með bestu próftöflu ever. Þvílíkur tími á milli próf, ætti að massa þetta allt saman. Útskrift 14 júní hallelúja.
Það er nóg að gerá í óléttunni hjá okkur Gígju. Það styttist í BUMBÓ, settur dagur er 9 júlí. Þvílík spennan og tilhlökkun hjá okkur skötuhjúunum.
Sumarið er komið og grillið hefur verið tekið út, algjör snilld að skella lundum á grillið og hafa það kosý. Kannski með reddara handa kallinum og vatn með Sítrónu handa konunni heheheheh.
Gleðilegt sumar
Jæjæ nóg í bili, AGJ
Áfram Njađvík.....atli geir júlíusson
Hvað er eiginlega að gerast í mekka körfunnar á Íslandi...... tap fyrir ÍR, KR, Snæfell og Stjörnunni eftir áramót er engann veginn ásættanlegt. Hvað er að og hvað er til ráða????? Innanbúðar vandamál eru eitthvað sem gengur um bæinn??? Er eitthvað til í því??? Guðmundur er ekki í liðinu í kvöld skv kki.is, maður spyr sig hvort Teitur, þessi frábæri leikmaður, sé maður í starfið? Nú verða hluteigandi aðilar að taka sig taki.... stuðningsmenn verða að fara að mæta betur á leiki (fjöldi fólks á UMFN-Snæfell í bikarnum um daginn var til skammar eins og stemminginn var góð á leik UMFN og KR í bikarnum), stjórnin verður að ákveða hvort þeir treysta Teiti og að minnsta kosti láta hann vita hverjir stjórna
það verður að halda uppi aga og þar er þjálfarinn engin undantekning og leikmenn verða að rífa sig upp af rassgatinu. Úrslitakeppnin er á næsta leyti og þar verur allt að smella svo að vel fari. Ísl. bikarinn heim. Svo er það náttúrulega alltaf þessi spurning með kanamálin... Damon er frábær leikmaður en er það nóg? Þarf annan eða jafnvel tvo tilþess að koma okkur í sama flokk og hin liðin? Við getum vel spilað flottan bolta með þennan hóp sem er í dag, það sást vel í Kef og gegn KR í bikarnum um daginn en allan stöðugleika vantar bæði í liðið og þá sem stjórna. Að mínu mati er alveg út í hött að græja annan útlending ef við getum ekki gert þett á okkar strákum þá er ekkert gaman að þessu.... Auvitað er gaman að vinna leiki en þegar 3-4 kanar eru að taka allan spilatímann af efnilegum strákum er sjarminn farinn af þessu.
Nóg komiđ af snjó... nú má hitinn og sólin fara ađ komaatli geir júlíusson
jæja crazy people komið að smá bloggi.... maður er búinn að sitja fastur inn í allan dag það er eins og að þeir sem stjórna veðrinu hugsa eins og þeir sem stjórna snjóruðningstækjum hér í bæ. Besta að gera allt vitlaust á kanavellinum með brjáluðu veðri og sköfum ekki götur þar á bæ fyrr en seint og síðar meir..... auðvitað skilur maður það að gröfur séu frekar setar í það að moka "stóru strætó göturnar" en common setja eina gröfu í það að moka götur upp á kanavelli. Maður óska þess bara að sólinn fari að láta sjá sig meira og ylji manni um hjartarætur....Nú er maður byrjaður í ræktinni, ég keypti mér kort í lífstíl og nú á að taka á því...... spinningtími í gær var hrillilega erfiður enda hefur maður ekki hreyft sig síðan í átakinu fyrir jól... núna verður ekkert væl bara tekið á því bumban skal í burt og 6-pack hérna kem ég, I wish :) Maður verður bara koma þessu í rútínu og málið er dautt, síðan væri maður líka alveg til í að komast í smá körfubolta dusta rykið af skónum...... Maður þyrfti allavegna ekki að dysta mikið af til þess að rúlla upp M.fl U.M.F.N. eins og þeir eru að spila núna, vonandi eru bjartari dagar framundan hjá þeim íslandsmeistaratitill og ekkert annað. Áfram Njarðvik.
Allt gengur vel hjá okkur Gígju. Gígja á fullu í skólanum og ég í vinnunni og skólanum, þ.a.s. þegar BRAUTIN er í lagi.
Fór að skoða skítinn úr fólki í Hveragerði um daginn í kúrz sem ég er í... þvílík lykt, væntalega svipuð lykt og er í kringum Villa Tilla þessa daganna :) og þessi skólphreinsistöð á að vers sú háþróaðasta á landinu með eitthvað 3ja þrepa hreinsunarkerfi.... hvernig ætli lyktin annarsstaðar sé, shiturinn spyrjum bara Villa af því.........
Nóg í bili, mbk
Ný borgarstjórn í Rvk. Bingi ađ fara á kostum.atli geir júlíusson
Jæja gott fólk núna er allt að verða vitlaust í höfuðborg landsins. Borgarstjórnarskipti, ég get ekki af því gert en ég fylltist af gleði. Tilhugsunun að Bingi, Svandís og Dagur grétu 100 daga valdatíð sína varð allt í einu gleðiefni.
Þremeningarnir ásamt varahjólinu hafa verið að tala um lygar, óheilindi og forkastanlega vinnubrögð svo að eitthvað sé nefnt, en muna greinilega ekki eftir leynilegum fundi þeira, þar sem þeir bláu voru illa stungnir í bakið. Já Bingi hélt að hann hefði sigrað heiminn en Nei, nú er hann valdalaus í dýrum flottum fötum. Ekki leiðinlegt.
Auðvitað er þetta mál allt saman leiðinlegt fyrir trúverðuleika stjórnmála í Rvk. En ef menn vilja ekki vera í samstarfi eða líður illa í því þá verða menn að fylgja sannfæringu sinni. Síðan má náttúrulega ekki gleyma því að það eru allir í pólitík til þess að hafa ábyrgð, og það gera þeir ekki nema þeir hafi völd ;)
kveðja AGJ
Í blíđu og stríđu međ íslenska landsliđinu.atli geir júlíusson
Hver var að horfa á leikinn áðan. Shiturinn hvað Ísland voru lélegir, aldrei séð annað eins. Þvílíkt áfall miðað við allar yfirlýsingarnar frá leikmönnum, gömlum sem núverandi og fleiri spekingum. En þetta er nú bara fyrsti leikur, við tökum einn leik fyrir í einu eins og Benitez segir heehe. Áfram Ísland á laugardaginn.kveðja hanboltafan næstu tvær vikurnar.
