Ný borgarstjórn í Rvk. Bingi að fara á kostum.atli geir júlíusson

Jæja gott fólk núna er allt að verða vitlaust í höfuðborg landsins. Borgarstjórnarskipti, ég get ekki af því gert en ég fylltist af gleði. Tilhugsunun að Bingi, Svandís og Dagur grétu 100 daga valdatíð sína varð allt í einu gleðiefni.

Þremeningarnir ásamt varahjólinu hafa verið að tala um lygar, óheilindi og forkastanlega vinnubrögð svo að eitthvað sé nefnt, en muna greinilega ekki eftir leynilegum fundi þeira, þar sem þeir bláu voru illa stungnir í bakið. Já Bingi hélt að hann hefði sigrað heiminn en Nei, nú er hann valdalaus í dýrum flottum fötum. Ekki leiðinlegt.

Auðvitað er þetta mál allt saman leiðinlegt fyrir trúverðuleika stjórnmála í Rvk. En ef menn vilja ekki vera í samstarfi eða líður illa í því þá verða menn að fylgja sannfæringu sinni. Síðan má náttúrulega ekki gleyma því að það eru allir í pólitík til þess að hafa ábyrgð, og það gera þeir ekki nema þeir hafi völd ;)


kveðja AGJ

Athugasemdir

1
Fowler skrifar:
Líður Ólafi ekki illa útaf einhverju allt öðru... Var það ekki ástæðan fyrir veikindaleyfi hans??

Svo verður þetta tímaspursmál hvenær þessi meirihluti springur..

En þessir bláu voru nú ekkert stungnir í bakið, arfaslök pólitík Villa varðandi REI málið þar sem að hann var í þessum leik sjálfstæðismanna (jaðrar við syndrome...) Að hygla sínum og gefa milljarða í vasa einhverra útvalda varð honum að falli ;) Bingi bjargaði sér en mannorð hans og pólitískur ferill beið hnekki.

Skrýtið að Ólafur skuli ekki bara segja sig úr frjálslynda og ganga til liðs við sjálfstæðisflokkinn, hann yrði góður þar þangað til að kæmi að kosningum, þá fengi hann sömu meðferð og Kristján Páls og Gunnar Örlygs... Útskúfun...

Fyrst að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur geta unnið saman í landspólitíkinni afhverju ekki í sveitastjórnarpólitíkinni...??

Þá sjást þeir saman Ólafur í sjúkrahússloppnum og Bingi í jakkafötunum að gefa öndunum hjá ráðhúsinu ;)
23. janúar 2008 klukkan 00:38
2
Sigurjón skrifar:
Mér þykir stjórnmálamenn vera ansi fljótir að gleyma....Björn Ingi fór nú ekki drengilega að þessu, reyndar fannst mér hann skíta upp á bak þegar hann losaði sig við enn eitt hnífasettið í bak þeirra bláu!

Fyndið að hlusta á Steingrím, Ingibjörgu og fleiri kjána tjá sig um þetta mál og hvílík svik og óheiðarleiki þetta væri hjá Ólafi! Best fannst mér þó þegar Dagur talaði um lygar, óheiðarleika, svik og fleira og Björn Ingi stóð við hliðina á honum með sitt svínslega glott og þeir báðir greinilega búinir að gleyma því sem Björn Ingi gerði fyrir rúmum 100 dögum síðan.
23. janúar 2008 klukkan 10:12
3
Rannveig skrifar:
Vúhú til hamingju með að vera búinn að taka atur upp bloggpennann, líst vel á þig;)
23. janúar 2008 klukkan 19:31
4
atli geir júlíussonFowler: velkominn, maður ætlar nú að reyna að gerast alvöru bloggar. Varðandi Villa þá er hann löngu búinn að gera upp á bak og ætti að vera búinn að segja skilið við þá bláu. Hann leit hálf kindalega út á blaðamannafundinum, var eins og Bingi var fyrir einhverjum 100 dögum sigrihrósandi, spurnig hvort það springi ekki í andlitið á honum eins og þú spári, hver veit??
Auvitað voru sjálfstæðismenn stungnir í bakið og breytir engu um arfaslaka pólitík Villa eins og þú kallar það. Bingi var búinn að lofa hinu og þessu en sveik og sveik og finnst hann síðan vera svikinn núna sem hann reyndar er, en who cares. Að vísu veit maður ekki alveg hverjum maður á a trúa það tala allir í þversögn við alla.

Rannveig; takk takk maður verður nú að reyna að taka á því :)



23. janúar 2008 klukkan 21:16
5
Gunnar Örn skrifar:
Dude, gaman að sjá að kappinn er farinn að blogga aftur að viti :) Vonandi gengur og heilsasr allt velt hjá ykkur skötuhjúum, bið að heilsa :)
24. janúar 2008 klukkan 19:21
6
Gunnar Örn skrifar:
Ps. Já minna kappann lika á að bloggið er núna einarsson1.blogspot.com :) Sá að linkurinn hjá þér er enn á gömlu síðuna..hehe
24. janúar 2008 klukkan 19:23
7
atli geir júlíussonGræja þetta með linkinn þinn Gunni, ætla mér núna að reyna að blogga eitthvað af viti.
25. janúar 2008 klukkan 10:04
8
Gunni skrifar:
Magnað, alltaf sami höfðinginn :)
25. janúar 2008 klukkan 15:03

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: atli geir júlíusson
  • Netfang: agj2@hi.is
  • Staður: Keflavíkurflugvöllur
  • Heimilisfang: Skógarbraut 928
  • Símanúmer: 8491612
  • Atvinna: Umhverfisverkfræðinemi
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Íþróttir???

Klukkan